mótmælin þessa dagana
Virkilega!!! hverju skilar það sér að mæta með hulið andlit og hamar og brjóta rúður til að mótmæla...fávitar. Verið þið nógu miklir menn og konur að sýna andlit ykkar þegar þið mótmælið.
Og hverju skilar það að birta nöfn lögreglumanna og heimilsföng þeirra á bloggum landsins. Þetta er vinnan þeirra og að ýta yndir það á bloggum landsins að fara heim til þessara manna sem eru einungis að sinna vinnunni sinni og hafa í hótunum við þá sýnir bara hversu mikill fávitaskapur hrærist í þessum hópi sem er að mótmæla. Ekki hefur lögreglan stjórnað landinu síðustu ár..
Það fer líka einstaklega mikið í taugarnar á mér þegar foreldrar eru að draga börnin sín í mótmælin. Það vita allir að þarna er verið að kasta hinu og þessu, fólki er ýtt, fólk treðst undir og löggur nota kylfurnar sínar, það skal enginn segja mér að maður með viti fari með barnið sitt í miðpunkt mótmæla. Foreldar sem gera þetta mega skammast sín jafn mikið og okkar kæru stjórnmálamenn og aðrir skúrkar landsins!
Ég vil taka þátt í mótmælum, ég skal með glöðu geði mæta á Austurvöll með pott og pönnu og framkalla hávaða en ég vil samt ekki taka þátt í svona rugli eins og hefur verið síðustu tvo daga.
Kaffi kósý boð á Drafnarstíg ! :)
Enn ég hlakka til að sjá ykkur sem fyrst.. þannig verið í bandi.. (og ég er ekki með símann hjá neinum nema þeim sem ég man símann hjá frá því úr barnæsku.. s.s. Jóhanna, Guðrún, Erla.. ummm hina símana man ég ekki utan-að.. svo ég byrja á að hringja í ykkur stúlkur.. be ware!! :D )... Nánar
jæja stelpur mínar
Síðasta vikan í jan...
bíó
út að borða
heimahús
kaffihús :)
Er e-h áhugi fyrir því???
finnst slæmt að ég hitti fólkið frá Kína oftar en ykkur :(
kveðja
Jóhanna
Helga 28 ára í dag...
Til hamingju með afmælið gamla mín :)
Hafðu það sem allra best í dag þó ég held að þú sért bara að vinna hehe :)
sjáumst hress sem fyrst :)
hóhóhó....
TIL LUKKU MEÐ DAGINN ELSKU JÓHANNA OKKAR, MEGIR ÞÚ EIGA YNDISLEGAN AFMÆLISDAG 
SVO VIL ÉG ÓSKA ÖLLUM GRÝLUM GLEÐILEGRA JÓLA
*JÓLAKVEÐJA*
KOLLA KNÚS
Afmæli mitt
Til allra mæðra....
að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,
en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.
Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja
og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur.
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga
og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki
tungumálið sem mennirnir tala ?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur
tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engillinn þinn á
eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun
ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og
guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara "Mömmu"
Smá öppdeit
Jæja pæjur, þá fór ég í smá próffíling um helgina. Hef ekki farið í próf síðan ég álpaðist í stærðfræðiprófið í HR á sínum tíma fyrir jahhh ca 4 árum
djisss.... skemtilegur tími! (gubb)..... en alveg merkilegt svona þegar maður er að lesa fyrir próf þá er bara eitt sem maður vill og það er nammi í allskonar mynd og gos og ekki bara hvaða gos heldur kók! alveg furðulegur annskoti.
svo langaði mér alveg óstjórnlega mikið í karmellur og það eina sem mig langaði í var makkintossss.... gæti verið óléttan að segja til sín eða....
hoho
en hei ætlaði nú ekki að blogga um þetta en ég var að fá símtal áðan til að staðfesta Brunchið okkar þann 13.des í the Tower, kl. 13 ...vibbííí
þær sem eru búnar að staðfesta eru
Minns
Erlos
Jógos
Helgos
Elínos
Unnsos
Maggos (kemur þú?skildi ekki alveg svarið þitt elskan)
Krissos hef ekkert heyrt
Gussos kemst ekki.
hei það væri stuð ef öll nöfnin okkar enduðu á os... 
Þá erum við 6 stykki sem ætlum að úða í okkur... hlakka til að hitta ykkur og í tilefni af því þá læt ég fylgja með mynd af yfirkokknum í Turninum... held hann eigi eftir að elda svaðalega jólasteik á borðið.. hoho..stuð að eilífu, já bless
Kynning og sala :)
Hæhæ allar skvísurnar í Grýlunum
Við ætlum að halda smá kynningu heima hjá Fanný Þorláksgeisli 25 á mánudaginn 8 des kl 20, endilega komið og takið vin með, það verður Mikið mikið gaman
Fríða frá TIGI ætlar að kynna fyrir okkur snyrtivörurnar sem hún er með frá Bed Head
Rosalega flottar vörur á ótrúlega góðu verði.....
Látið sjá ykkur,þið missið af miklu ef þið komið ekki... flott að vita syrka hvað margir koma þannig endilega láta mig vita.
P.S ekki gleyma buddunni, ekki með posa
Grýlu-jólabrunch Turninn 13 desember
Sælar mínar kæru Grýlur 
ég og Jóhanna vorum að spjalla og við vorum að pæla hvort það væri ekki tilvalið að hittast í jólabrunch svona rétt fyrir jólin. Vorum að skoða jólabrunch sem Turninn býður upp á hér er linkurinn
http://turninn.is/?flokkur=6&undirflokkur=49
það kostar 3.150 ISK..hoho fyrir Grýluna og þetta er eingöngu Grýlubrunch
svo væri nú gaman að skreppa aðeins í jólageðveikina í Smáralindinni og kaupa jólaséríur eða jólasokk.....
þar sem við höfum alltaf hafa svo mikið að gera og alveg vonlaust að finna dag sem allar komast þá varð dagsetningin 13 des fyrir valinu, ekki of stutt í jólin
við munum sjá um að panta fyrir allar og frábært væri ef þið gætuð kommentað sem allra allra fyrst. 
Með yndislegri jólakveðju og von um góða mætingu
Jóa og Kolla
p.s tók þessa svörtu þunglyndissíðu út... tókuð þið eftir því...???